Hide

Problem I
Eilíf æska

Languages en is

Hildur hefur gaman af því að blanda drykki og hefur skapað drykkinn eilíf æska. Hún hefur hellt drykknum í nokkur glös og ætlar að deila með nokkrum vinum sínum. Eftir að hafa hellt í glösin tekur hún eftir því að ekki er jafn mikið magn í öllum glösum. Til að gæta ítrustu sanngirni þarf hún lagfæra fyrri mistök með því að hella úr einu glasi í annað, eins oft og þarf, þar til jafnt er í öllum glösum. Þegar hún hellir úr glasi i í glas j þá þarf glas i að innihalda að minnsta kosti jafn mikið magn og glas j. Einnig hættir hún að hella úr glasi i í glas j þegar jafnt er í báðum glösunum. Hjálpið Hildi og vinum hennar að öðlast eilífa æsku.

Inntak

Fyrsta línan inniheldur eina heiltölu n, þar sem 1n4. Síðan kemur ein lína með n heiltölum ai, magn vökva í glasi i í mL. Það gildir alltaf að 0ai108.

Úttak

Ef ekki er til lausn skrifaðu út 1. Annars skal skrifa út heiltölu 0k1000 sem er fjöldi umhellinga á milli glasa. Ef hægt er að leysa vandamálið þá er það hægt með fjölda aðgerða innan þessarra marka. Því næst koma k línur með tveimur heiltölum 1i,jn hver, sem segja að hellt sé úr glasi i í glas j þar til jafnt er í báðum. Svarið er talið rétt ef öll glös innihalda jafnt magn eftir allar aðgerðirnar gefið að allar aðgerðirnar séu gildar. Ef aðgerð vísar í glas sem ekki er til eða hellir úr glasi i í glas j þegar minna magn er í glasi i en er í glasi j þá er sú aðgerð talin ógild.

Stigagjöf

Hópur

Stig

Takmarkanir

1

50

1n2

2

50

3n4

Sample Input 1 Sample Output 1
2
3 5
1
2 1
Sample Input 2 Sample Output 2
4
100 200 200 100
2
3 4
2 1
Hide